Hver var arftaki Verdis?
- Tónskáld
- Giacomo Puccini
Óperan Tosca eftir Giacomo Puccini (1858-1924) hefst á þremur kraftmiklum hljómum: B-dúr, As-dúr og Es-dúr. Saman mynda þessir hljómar stef sem kennt er við eitt mesta illmenni óperubókmenntanna, lögreglustjórann Scarpia. Í sjálfu sér eru þetta býsna einfaldir hljómar en fram til ársins 1900 hafði engum dottið í hug að raða þeim saman með þessum hætti. Við skulum því aðeins velta því fyrir okkur hver leiðin var að þessari hljómasamsetningu.
Giuseppe Verdi fæddist árið 1813 og lést 1901. Hann brúaði bilið milli bel canto-stílsins og rómantíkurinnar og bera höfundarverk tónskáldsins – en skáldatímanum er jafnan skipt í þrjú tímabil – merki þessarar þróunar. Segja má að í fljótu bragði eigi verk á borð við Oberto (frá 1839) og Un giorno di regno (frá 1840) lítið annað sameiginlegt með Otello (frá 1887) og Falstaff (frá 1893) en að vera eftir Giuseppe Verdi. Fyrri tvær óperurnar bera mikil merki bel canto-stílsins en seinni tvær eru rómantísk verk; Otello jafnvel undir áhrifum frá jafnaldra Verdis, Richard Wagner (1813-1883), þó svo að ítalska tónskáldið hafi aldrei mátt heyra á slíkt minnst.
Óperuformið naut gríðarlegrar hylli á Ítalíu allt frá dögum Rossinis, þó svo að það hafi kannski komið í hlut Bellinis og Donizettis að fullkomna bel canto-stílinn. Verdi var hinn sanni arftaki þessara manna. En hver var arftaki Verdis og hvernig þróaðist óperuformið eftir hans daga? Það var einmitt hinn 22. desember 1858 sem maður að nafni Giacomo Antonio Domenico Michele Secondo Maria Puccini fæddist í borginni Lucca í Toscana á Ítalíu en við þekkjum hann betur undir einfaldara heitinu Giacomo Puccini.
Vísast var Puccini arftaki Verdis enda tóku áhrif ítalskra tónskálda á þróun óperuformsins að dvína eftir hans daga. Auðvitað komu önnur ítölsk tónskáld til sögunnar eftir daga Puccinis en ekkert þeirra hafði jafn djúpstæð áhrif á tónlistarsöguna. Puccini þróaði stíl sem kenndur er við raunsæi (verismo) en kannski má segja að verk hans í öndverðu hafi átt rætur að rekja til rómantískrar stefnu 19. aldar. Það breyttist hins vegar smám saman með verkum á borð við Manon Lescaut frá árinu 1893, en hún var frumflutt viku áður en óperan Falstaff eftir Verdi var fyrst sett á svið.
Þó svo að mörg verka Puccinis hafi snemma komist í hóp mest fluttu verka á fjölum óperuhúsa átti tónskáldið erfitt í öndverðu. Hann nam í Mílanó, meðal annars hjá Ponchielli, og árið 1883 tók tónskáldið þátt í virtri keppni kenndri við Sonzogno-forlagið með óperunni Le Villi. Hann reyndist ekki eiga erindi sem erfiði og varð ekki einu sinni meðal fimm efstu keppenda. En óperan komst samt á svið og forleggjarinn Giulio Riccordi keypti útgáfuréttinn. Hann hafði trú á Puccini, þó svo að aðrir drægju í efa að hér væri kominn hugsanlegur arftaki Verdis.
Nú fór í hönd áratugur þar sem hvorki gekk né rak hjá Puccini. Óperan Edgar var frumflutt á Scala í Mílanó í apríl 1889 og hlaut ekki góðar viðtökur. Hluthafar í Casa Ricordi gerðust nú óþreyjufullir og vildu segja upp samningi við tónskáldið sem gerður hafði verið við hann eftir frumflutning á Le Villi, en Giulio Ricordi var því andsnúinn. Það átti eftir að borga sig því í febrúar 1893 komst Manon Lescaut á fjalir Teatro Regio í Tórínó og sló eftirminnilega í gegn. Dagblaðið La Stampa sagði í umfjöllun sinni að verk Puccinis bæri með sér mikil fyrirheit og að loknum frumflutningi á verkinu í Lundúnum árið 1894 skrifaði George Bernard Shaw: „Mér sýnist Puccini fremur vera arftaki Verdis en nokkur annar keppinauta hans.“
Hér skiptir máli að þegar Puccini vann að Manon Lescaut komst hann í kynni við textahöfunda sem áttu eftir að breyta öllu. Þetta voru þeir Luigi Illica og Giuseppe Giacosa og átti þrenningin eftir að vinna saman að næstu þremur óperum tónskáldsins, óperum sem breyttu tónlistarsögunni: La bohème, Tosca og Madama Butterfly, jafnvel þó svo að síðasttalda verkið hafi „fallið“ – ef við getum orðað það svo – á frumsýningunni.
Puccini efnaðist geysilega og talið er að virði dánarbús hans hafi numið um 200 milljónum dollara á núvirði þegar hann lést í nóvember árið 1924. Hann lifði bæði hátt og hratt og barst á, einkum í fatnaði og bílakaupum. Puccini hafði yndi af hraðakstri og var hætt kominn í bílslysi árið 1903 – en taka ber fram að þá var tónskáldið sjálft ekki undir stýri. Þrátt fyrir háan lífsstíl þótti Puccini þægilegur í viðmóti, það er að segja við alla aðra en textahöfunda sína, og breski hljómsveitarstjórinn sir Thomas Beecham lýsti honum sem hæglátum og lítillátum manni sem hafði sig lítt í frammi. Það sem einkenndi hann hins vegar var gríðarleg frestunarárátta og hann samdi verk sín á síðustu stundu undir miklu álagi – það er að segja þegar hann loksins kom sér í að semja.
Kannski má segja að öfugt við Mozart, Verdi og Wagner hafi Puccini ekki endilega batnað með aldrinum. Eins og hjá Verdi og Wagner er tónskáldaferli hans skipt í þrjú tímabil og frægustu (og mest fluttu) verkin – La bohème, Tosca og Madama Butterfly – eru frá miðtímabilinu. Hér er ég þó alls ekki að gera lítið úr verkum frá þriðja (og loka) tímabilinu, óperum á borð við La fanciulla de West og Turandot, en flestir eru sammála um að Il tritico (það er að segja Il tabarro, Suor Angelica og Gianni Schicci) og svo La rondine standi óperum frá miðtímabilinu ekki á sporði.
Rétt eins og hjá Verdi (og raunar mörgum öðrum tónskáldum) er gríðarlegur munur á verkum Puccinis í öndverðu og svo þeim sem hann samdi undir lok ferilsins. Fyrsta ópera hans og sú síðasta, Le Villi og Turandot, eiga þannig lítið sameiginlegt. Í seinna verkinu birtist módernismi undir austurlenskum áhrifum en auðvitað tókst Puccini ekki að ljúka við verkið áður en hann lést í Brussel í Belgíu árið 1924 – eins og áður segir – en þangað hafði hann farið til þess að leita sér lækninga við krabbameini í hálsi.
Puccini lýsti minnstu smáatriðum í umhverfinu í raddskrám sínum. Þannig heyrum við stef sem geta táknað atburði, tilfinningar, persónur eða jafnvel hugarástand í verkum hans. Puccini var hins vegar enginn mínimalisti. Laglínur hans hljóma þannig ýmist í örfínni kammerútfærslu eða þá af fullum krafti í allri hljómsveitinni. Frægustu laglínur Puccinis þekkja enda allir („Nessun dorma“, „E lucevan le stelle“ og svo framvegis).
Hér áður fyrr litu margir í tónlistarheiminum niður á verk Puccinis; hann var kallaður æsingamaður sem skortir næmni eða þá nokkurs konar almúgamaður meðal elítunnar. Þannig var Toscu lýst sem „shabby little shocker“ en uppruna þessarar skoðunar mátti einkum rekja til Breta, manna á borð við Tovey og Britten. Kannski var þetta minnimáttarkennd, einhvers konar hræðsla við hið óþekkta – tilfinningar voru ekki bornar á torg eða það sem við getum kallað á góðri íslensku „stiff upper lip“. Þetta er breytt í dag og nú hefur enginn lengur horn í síðu Puccinis, síður en svo. Verk hans fylla þannig óperuhúsin þegar þau eru sett á svið og kannski má einmitt fullyrða að verk Puccinis séu meðal örfárra verka (hér má einnig nefna Carmen, La traviata og Töfraflautuna) sem ganga má út frá því sem gefnu að óperuhúsin tapi ekki á – að minnsta kosti ekki stórkostlega. Því geta óperuhúsin leyft sér – eins og breski rithöfundurinn Denis Forman hefur bent á – að sýna önnur verk inn á milli sem hafa minna aðdráttarafl, einmitt vegna þess að verk Puccinis skila sínu í kassann.
Magnús Lyngdal Magnússon
Greinin birtist í Morgunblaðinu í ágúst 2023