Beethoven.is
Fróðleikur · 20. júlí 2023

Ekki vera hrædd við Hringinn

Tónskáld
Richard Wagner

Það er engin ástæða til að óttast Niflungahringinn (eða Hringinn) eftir Richard Wagner (1813-1883). Þetta epíska verk – sem samanstendur af fjórum aðskildum óperum – tekur að vísu um 15 klukkustundir í flutningi (fer reyndar eftir því hver er að stjórna) en því er líka dreift á fjögur kvöld. Verkið var frumflutt í heild sinni í Bayreuth 13. til 17. ágúst árið 1876 en óperurnar eru Rínargullið (Das Rheingold), Valkyrjan (Die Walküre), Siegfried og Ragnarök (Götterdämmerung).

Lengi framan af fóru Wagneristar í pílagrímsför til Bayreuth – svona eins og áður fyrr var gengið suður til Rómar – en upp úr miðri síðustu öld fór að bera á hljóðritunum; fyrst af einstökum óperum Hringsins, svo af honum öllum. Nú er úrvalið gott, hvort heldur sem er á plötum, geisladiskum, mynddiskum eða í streymi. Auðvitað dreymir þó alla Wagnerista um að koma til Bayreuth en óperur Wagners eru líka víða settar á svið, þar á meðal Hringurinn. Stytt útgáfa hans (um fimm klukkustundir) var meðal annars færð upp á Listahátíð í Reykjavík árið 1994.

Wagner hafði gífurleg áhrif á tónlistarsöguna. Þannig þróaði hann stíl þar sem hlutverk hljómsveitarinnar reyndist jafnmikilvægt og hlutverk söngvara auk þess sem þaðan hljóma leiðarstef. Þau kynna til sögunnar persónur, hluti eða jafnvel tiltekna atburðarás. Allt er þetta ofið saman í margslunginn vef sem tónskáldið spinnur.

Wagner – sem var að mestu sjálfmenntaður – spratt úr vöggu rómantíkurinnar en hann sneri að mörgu leyti baki við þýskri tónlistarhefð. Hæfileikar hans voru ekki eingöngu bundnir við tónlistarsviðið, hann var skáld gott og hafði næmt auga fyrir dramatískri framvindu. Sjálfur setti Wagner fram kenningu um listform framtíðarinnar í ritum sem birtust árin 1850 og 1851 (List framtíðarinnar, Ópera og drama og Skilaboð til vina minna). Þar færði hann meðal annars rök fyrir því að óperuformið ætti að sameina önnur listform, tónlist, söng, dans, kveðskap, sjónlistir og sviðslistir. Hið sameinaða listform nefndi Wagner „tónlistardrama (Musikdrama)“ og hann samdi sjálfur texta við eigin verk. Þar skapaði hann frásögn sem fól í sér djúpa heimspekilega merkingu og hún dýpkaði enn eftir að Wagner komst í kynni við Schopenhauer. Hann sannfærðist þannig um að tilgangur tónlistar væri einhvers konar tjáning á frumspeki.

Árið 1852 lauk Wagner að mestu við texta Hringsins sem hann samdi að vísu í öfugri röð (Ragnarök fyrst og Rínargullið síðast). Strax árið 1853 tók hann til við að semja tónlistina (samin í réttri röð) og á árabilinu 1853-1857 lauk hann við Rínargullið, Valkyrjuna og rúman helminginn af Siegfried. Þá tók Wagner sér hlé en nýtti tímann vel, enda lauk hann meðal annars við Parísarútgáfuna af Tannhäuser (1861), Tristan og Isolde (1865) og Meistarasöngvarana (1868) áður en hann tók þráðinn upp að nýju við Hringinn sem hann lauk við á árunum 1869-1874. Hann var, eins og fyrr segir, frumfluttur í heild sinni árið 1876. Þá höfðu bæði Rínargullið (1869) og Valkyrjan (1870) áður verið fluttar í München.

Hringurinn á sér stað utan tíma og rúms. Markmið tónskáldsins var án efa að skapa grunn fyrir mýtur sem aftur skyldu móta grunn að menningu og þjóðerni hins nýja sameinaða þýska ríkis (1866-1871). Þannig byggjast persónur og leikendur í verkum Wagners á hugsjónum í stað þess að eiga sér fyrirmyndir í einstaklingum sögunnar. Tónskáldið sótti efnivið Hringsins í eddukvæði, Snorra-Eddu og Völsunga sögu auk þýskra samtímaheimilda sem reistar eru á þessum verkum. Hér koma auðvitað góð skil á norrænni goðafræði að notum en örvæntið ekki; sagan er geysilega vel sögð og grípandi.

Leikurinn hefst í djúpi Rínar þar sem Rínardætur gæta gullsins. Með því að afneita ástinni tekst dvergnum Alberich að ræna gullinu og smíða úr því hring; handhafi hans ræður yfir heiminum. Sagan hverfist um þennan hring sem allir berjast um en lyktir eru þær að heimurinn ferst að lokum í Ragnarökum og gullið kemst aftur í hendur Rínardætra. Á fimmtán klukkustundum býður Wagner upp á mikið sjónarspil. Hlutverkin eru á fjórða tug, að vísu mjög misstór, en þar bregður fyrir ásum, hetjum, illmennum, jötnum, dvergum, valkyrjum, dreka og nornum svo eitthvað sé nefnt. Hljómsveitin er gríðarstór (um og yfir 100 manns) og kallar meðal annars á sjö hörpur og átján steðja (Rínargullið) og kór og níu horn (Ragnarök). Rínargullið er styst (um tveir og hálfur tími) en Ragnarök er lengst (hálfur fimmti tími). Valkyrjan og Siegfried taka hvor um sig um fjóra tíma í flutningi.

Það hefur alltaf verið erfitt að manna heilan Hring. Burðarhlutverk á borð við Wotan, Brünnhilde og Siegfried eru afar erfið viðfangs og kröfurnar allt að því ofurmannlegar. Önnur stór hlutverk, svo sem Alberich og Fricka, eru líka snúin en margir halda því fram að nú á dögum sé nær útilokað að flytja Hringinn svo vel sé. Þannig talaði til að mynda hljómsveitarstjórinn sir Georg Solti, sem sjálfur hljóðritaði frægan Hring fyrir Decca á árunum 1958-1965. Í ævisögu sinni (Solti on Solti: A Memoir) sem kom út árið 1997 lýsti hann raunum sínum þegar hann stjórnaði Hringnum í Bayreuth árið 1983. Þá rak hann til að mynda Reiner Goldberg á síðustu stundu en hann hafði verið ráðinn til þess að syngja hlutverk Siegfrieds og Manfred Jung hljóp í skarðið. Solti hélt því fullum fetum fram að nú (það er að segja árið 1997) væri útilokað að setja Hringinn á svið þannig að gæði söngsins væru þau sömu og upp úr miðri 20. öld. Þessu eru ekki allir sammála, samanber fínan Hring frá Ríkisóperunni í Berlín árið 2022 sem Christian Thielemann stjórnaði og Dmítríj Tsjerníakov leikstýrði.

Hvað um það, fáanlegar hljóðritanir á Hringnum (á plötum, geisladiskum, mynddiskum og í streymi) eru í kringum 50 talsins. Á geisladiskum einum og sér eru um 40 hljóðritanir fáanlegar og á undirritaður 35 af þeim (hinar fimm hef ég heyrt en sumar þeirra er erfitt að fá keyptar). En með hvaða upptökum mæli ég sérstaklega (og hvað ber að forðast)? Hér hlýtur smekkur að ráða för, eftir hvaða söngvurum eða stjórnendum hlustendur eru að slægjast og hvort hljóðið þarf að vera upp á tíu.

Standi hugurinn til sviðshljóðritunar frá Bayreuth koma einkum þrjá til greina, það er að segja upptaka sem Clemens Krauss stjórnaði árið 1953 (Hotter/Varnay/Windgassen; Gala), önnur sem Hans Knappertsbusch stjórnaði árið 1956 (Hotter/Varnay/Windgassen; Orfeo) og loks upptaka sem Daniel Barenboim stjórnaði árið 1992 (Thomlinson/Evans/Jerusalem; Warner). Sumir sverja reyndar við Joseph Keilberth árið 1955 (Testament) en ekki ég. Sennilega er ein besta Bayreuth-upptakan hins vegar sú sem aldrei kom opinberlega út, það er að segja sú með Sir Georg Solti frá 1983 (Nimsgern/Behrens/Jung). Til stóð að Solti stjórnaði Hringnum í Bayreuth aftur 1984 og í kjölfarið kæmi þessi hljóðritun formlega út. Solti sneri hins vegar ekki aftur til Bayreuth eftir Hringinn 1983, meðal annars vegna ósættis við Wolfgang Wagner stjórnanda Bayreuth-hátíðarinnar og ekkert varð því af útgáfu. Útvarpsupptökuna frá 1983 má hins vegar heyra víða, til að mynda á YouTube.

Úr hljóðverinu mæli ég annaðhvort með Sir Georg Solti (London/Hotter/Nilsson/Windgassen; Decca) eða Herbert von Karajan (Stewart/Crespin/Dernesch/Thomas/Brilioth; DG). Hvorug þessara upptaka er hins vegar gallalaus (Solti ýkir allt og Jess Thomas er ekki góður Siegfried hjá Karajan). Af stafrænum hljóðversupptökum er sú fyrri frá Marek Janowski (Adam/Altmeyer/Kollo; RCA) best sungin, þrátt fyrir að stjórnandinn skemmi upptökuna með allt of sléttri og felldri „túlkun“.

Hvað ber svo að varast: Báðar Wilhelm Furtwängler-upptökurnar (frá Róm og Scala), enda hljóðið hræðilegt; Hans Swarowski (frá Prag) og umfram allt Takashi Asahina (frá Tókýó). Annað er vel þess virði að hlýða á og því ekkert því til fyrirstöðu að hefjast handa. Heil dir, wiser Schmied!

Magnús Lyngdal Magnússon

Greinin birtist í Morgunblaðinu í júlí 2023

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu