Beethoven.is
Gagnrýni · 29. júní 2023

Óperuveisla Í Hafnarborg

Tónskáld
Richard Wagner, Richard Strauss, Wolfgang Amadeus Mozart, Georges Gershwin, Francesco Cilea, Gaetano Donizetti, Camille Saint-Saëns, Giacomo Puccini, Léo Delibes, Vincenzo Bellini, Giuseppe Verdi
Flytjendur
Hallveig Rúnarsdóttir, Arnheiður Eiríksdóttir, Cesar Alonzo Barrera, Unnsteinn Árnason, Hrönn Þráinsdóttir

Óperugala í minningu Garðars Cortes

★★★★½

Tónlist: Wagner, Strauss, Mozart, Gershwin, Cilea, Donizetti, Saint-Saëns, Puccini, Delibes, Bellini og Verdi. Einsöngvarar: Hallveig Rúnarsdóttir (sópran), Arnheiður Eiríksdóttir (mezzósópran), Cesar Alonzo Barrera (tenór) og Unnsteinn Árnason (bassi). Píanóleikari: Hrönn Þráinsdóttir. Tónleikar á Sönghátíð í Hafnarborg sunnudaginn 25. júní 2023.

Tónlistarhátíðin Sönghátíð í Hafnarborg, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónlistarhátíð ársins 2020, er nú haldin í sjöunda sinn. Alls eru átta tónleikar á dagskrá hátíðarinnar nú, þar á meðal tónleikar undir yfirskriftinni Óperugala, í minningu Garðars Cortes. Þar leiddu saman hesta sína fjórir einsöngvarar, þau Hallveig Rúnarsdóttir, Arnheiður Eiríksdóttir, Cesar Alonzo Barrera og Unnsteinn Árnason, ásamt Hrönn Þráinsdóttur sem lék á píanóið. Það má því segja að þar hafi verið komin saman reynd óperusöngkona (Hallveig) ásamt söngvurum þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á tónleikasviðinu. Bæði Hallveigu og Arnheiði hafði ég heyrt syngja áður, en hvorki Barrera né Unnstein. Þannig háttar til að Barrera, sem er frá Venesúela, er staddur hér á landi sem umsækjandi um alþjóðlega vernd. Hvað um það, boðið var upp á glæsilega efnisskrá sem náði frá Mozart til Gershwins og hvert sæti í salnum var setið.

Það var ekki byrjað á neinu léttmeti: Hallveig söng aríu Elísabetar, „Dich, teure Halle“, úr Tannhäuser eftir Richard Wagner (1813-1883) og gerði það með glæsibrag. Salurinn í Hafnarborg ber þó ekki tónlist af þessu tagi vel (reyndar er eftirhljómur þar almennt mjög lítill og salurinn „fyrirgefur“ því ekki margt í flutningi, einkum í söng) og kannski má segja það sama um aríu Octavian, „Wie Du warst“, úr Rósariddaranum eftir Richard Strauss (1864-1949) sem Arnheiður söng glæsilega (með smá innleggi frá Hallveigu). Unnsteinn söng næstu aríuna á dagskránni, brá sér í hlutverk þjónsins Leporellos og söng „Madamina, il catalogo è questo“ úr Don Giovanni eftir Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791). Röddin var ívið „köld“ þegar hann fór af stað en hann vann á. Það sama má segja um Cesar Alonzo Barrera sem næstur söng harmaljóð Federicos, „È la solita storia“ úr L’Arlesiana eftir Francesco Cilea (1866-1950). Röddin er giska falleg, lýrísk en þó með smá barítónlit. Hann vann verulega á. Þau Hallveig og Unnsteinn sungu næst glæsilega dúettinn „Bess, You Is My Woman Now“ úr Porgy og Bess eftir George Gershwin (1898-1937) áður en Barrera söng, nú afar vel, aríu Nemórínós, „Quanto è bella, quanto è cara“, úr Ástardrykknum eftir Gaetano Donizetti (1797-1848). Fyrri hluta tónleikanna lauk svo á tríóinu „Soave sia il vento“ úr Così fan tutte eftir Mozart (Hallveig, Arnheiður og Unnsteinn). Mér finnst þessi perla reyndar alla jafna flutt of hratt en það er auðvitað bara mín skoðun sem kannski ekki margir deila.

Það var orðið býsna „heitt“ í salnum þegar tónleikarnir hófust aftur eftir stutt hlé. Unnsteinn og Arnheiður riðu á vaðið með dúetti þeirra Don Giovannis og Zerlinu, „La cì darem la mano“, úr Don Giovanni eftir Mozart. Næst stóð svo Arnheiður ein á sviðinu og söng aríu Dalílu, „Mon coeur s’ouvre à ta voix“, úr Samson og Dalílu eftir Camille Saint-Saëns (1835-1921), með smá innskoti frá Barrera. Ég sá Arnheiði síðast syngja hlutverk Suzuki í Madama Butterfly hjá Íslensku óperunni í vor og ég leyfi mér að fullyrða að þessi flutningur á aríu Saint-Saëns í Hafnarborg nú var á heimsmælikvarða. Seiðandi og dýnamískur flutningur þar sem dökk mezzósópranrödd Arnheiðar fékk að njóta sín til fulls. Enda ætlaði allt um koll að keyra í salnum að flutningi loknum! Það var kannski ekki auðvelt að koma á eftir þessum flutningi en þau Hallveig og Barrera fluttu aríur úr Toscu býsna vel, annars vegar aríu Toscu úr öðrum þætti, „Vissi d‘arte“ og aríu Cavaradossis úr þriðja þætti, „E lucevan le stelle“. Ég var samt hrifnari af Barrera í öðrum verkum tónleikanna sem hann söng en í þessari aríu. Þá sungu þær Hallveig og Arnheiður blómadúettinn, „Dôme épais, le jasmin“ úr Lakmé eftir Léo Delibes (1836-1891) firna vel sem og Unnsteinn aríu Rodolfos greifa, „Vi ravviso“, úr La sonnambula eftir Vincenzo Bellini (1801-1835). Nú voru allir orðnir „heitir“. Giuseppe Verdi (1813-1901) átti svo það sem eftir var á efnisskránni, það er að segja dúett Alfredos og Gildu, „Parigi, o cara“ úr La traviata (Hallveig og Barrera), kvartettinn „Bella figlia dell‘amore“ (Hallveig, Arnheiður, Barrera og Unnsteinn) úr Rigoletto og svo aukalagið, „Libiamo“ úr La traviata þar sem salurinn tók undir. Undir öllum þessu mikla söng lék meðleikarinn, Hrönn Þráinsdóttir, ávallt vel.

Það var vel að tónleikarnir skyldu vera tileinkaðir minningu Garðars Cortes og ég er viss um að hann hefði verið stoltur af framtakinu. Við heyrum því alltof lítinn óperuflutning hér á landi (á því eru auðvitað undantekningar) en tónleikarnir í Hafnarborg voru sönnun þess að ekki skortir á hæfileikana, síður en svo.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í júní 2023

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu