„Allt lifir í ljúfustu ró!“
- Tónskáld
- Golfam Khayam, Joseph Haydn, Gustav Mahler
- Flytjendur
- Barbara Hannigan
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, Barbara Hannigan
Barbara Hannigan og Sinfóníuhljómsveit Íslands
★★★★★
Tónlist: Golfam Khayam (I am not a tale to be told), Joseph Haydn (sinfónía nr. 96 í D-dúr) og Gustav Mahler (sinfónía nr. 4 í G-dúr). Hljómsveitarstjóri og einsöngvari: Barbara Hannigan. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Tónleikar í Eldborg Hörpu 15. júní 2023.
Það er ekki oft sem við verðum vitni að heimsfrumflutningi í Hörpu, það er að segja ef frá er talinn frumflutningur á verkum eftir íslensk tónskáld. Fimmtudaginn 15. júní síðastliðinn fór einn slíkur fram, nú á stuttu en afar fallegu verki eftir írönsku tónlistarkonuna Golfam Khayam (f. 1983), I am not a tale to be told, við ljóð eftir íranska skáldið og rithöfundinn Ahmad Shamlou (samið árið 1955). Upphaflega var gert ráð fyrir að frumflytja verkið í París en sökum verkfallsaðgerða nokkurra hljómsveitarmeðlima Fílharmóníusveitar franska útvarpsins féllu þeir tónleikar niður og verkið rataði á fjalir Hörpu.
Yfirskrift verksins er harmagrátur (lament) en um var að ræða spunakennt verk fyrir sópran og litla hljómsveit. Yfirbragð verksins kann að hafa verið nokkuð frjálslegt en það myndaði órofa heild með fallegum og blæbrigðaríkum einsöngnum sem flaut yfir öllu saman. Það er alltaf erfitt að dæma túlkun á verki sem ekki hefur heyrst áður en flutningurinn einkenndist af næmni og samleikur hljómsveitarinnar, undir styrkri stjórn Hannigan, var prýðilegur.
Í september 1790 féll Nikulás prins af Esterházy frá og sonur hans, Anton, tók við völdum í austurríska keisaradæminu. Nikulás hafði verið velgjörðamaður Josephs Haydns (1732-1809) en sonurinn hafði minni áhuga á tónlist. Haydn vildi því leita á ný mið og hafði heimboð frá Lundúnum upp á vasann en þar nutu tónsmíðar hans gífurlegra vinsælda. Hann var á þessum tíma þekktasta tónskáld Evrópu en nokkuð einangraður og sóttist því eftir nýjum straumum og stefnum í tónlist; hann vildi meðal annarra orða vera „frumlegur“, eins og hann á að hafa orðað það sjálfur. Að fengnu faraleyfi hélt Haydn því af stað frá Vínarborg, hleypti heimdraganum um miðjan desember 1790 og kom til Calais við Ermasund á Nýjársdag 1791; þar sá hann hafið í fyrsta skipti. Dvölin í Lundúnum var nánast samfelld sigurganga og þar samdi Haydn tólf af síðustu númeruðu sinfóníum sínum, það er að segja sinfóníur nr. 93-104. Margar þeirra (eins og almennt gerðist með sinfóníur tónskáldsins) fengu viðurnefni, þar á meðal sinfónía nr. 96 sem auknefnd hefur verið „kraftaverkið“. Þó svo að hún hafði fengið númerið 96 í röðinni er hún elst Lundúna-sinfónía tónskáldsins. Þetta verk var einmitt á dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu.
Ég var pínulítið hissa á hve hratt tempó Hannigan tók í dulúðlegum inngangi verksins (Adagio) sem myndaði því kannski ekki jafn mikla andstæðu við kraftmikið D-dúr aðalstefið (Allegro) en þetta var vísirinn að því sem koma skyldi, að minnsta kosti í fyrsta þætti. Túlkunin var hins vegar björt og lífleg og fól í sér mikla dýnamík. Þetta var því léttleikandi Haydn í anda upprunaskólans en eftir því sem áður með því hraðara sem ég hef heyrt. Hljómsveitin var lítil (átta fyrstu fiðlur, fjórir kontrabassar, tvö horn, tveir trompetar o.s.frv.) en hljómurinn var kraftmikill og öll smáatriði heyrðust. Tempóið var miklu mildara í öðrum þættinum (Andante) og hljómurinn afar fallegur að mestu leyti (smá intónasjón vandamál hér og þar) – en mikil músík. Aftur var tempóið í hraðari kantinum í þriðja þætti, en það kom ekki að sök því hljómsveitin lék afar vel. Eftirminnilegast var stefið sem óbóið lék í seinni hlutanum, fyrst óbreytt en svo skreytt (ornamentað) þar sem Julia Hantschel átti stórleik. Fjórði kaflinn (Vivace assai) þaut svo hjá og einkenndist af öruggum innkomum og blæbrigðaríkri túlkun. Þó svo að ég hafi ekki verið endilega sammála öllum tempóum sem Hannigan valdi var flutningurinn ljómandi fínn og túlkunin firna góð.
Eftir hlé var svo fjórða sinfónía Gustavs Mahlers á efnisskránni. Það fór vel á því að enda á henni, enda Haydn og kallaður „faðir“ sinfóníunnar en Mahler var sá sem nýtti sér sinfóníuformið til hins ítrasta og var raunar einn af þeim síðustu (að minnsta kosti í þýskumælandi löndum) til þess að nýta sér þetta form. Verkið var að mestu samið sumrin 1899 og 1900 (ef frá er talinn fjórði þátturinn sem var saminn sem sönglag, Das Himmlische Leben (Hið himneska líf), árið 1892). Það er auðvitað kunnara en frá því þurfi að segja en Mahler var miklu frægari sem hljómsveitarstjóri en tónskáld á sinni tíð. Flestum sinfóníum hans var illa tekið, bæði af almenningi og gagnrýnendum sem skildu ekki verkin. Fjórða sinfónían var frumflutt af Kaim-hljómsveitinni í München (nú Fílharmóníusveitin í München) árið 1901 og hlaut ekki góðar viðtökur. Það var púað eftir fyrsta þáttinn og gagnrýnendur voru á einu máli um að verkið fæli í sér glundroða (kakófóníu). En eftir að vinsældir Mahlers (sem tónskálds) tóku að aukast um hálfri öld eftir fráfall hans komst fjórða sinfónían fljótt í hóp vinsælustu verka tónskáldsins og hefur verið þar æ síðan. Hún er minnst í sniðum af fullkláruðu sinfóníunum níu og styst og er lokahnykkurinn á sönglaga-sinfóníum tónskáldsins (nr. 1–4).
Hljómsveitin var ívið stærri en í Haydn (tíu fyrstu fiðlur, átta aðrar fiðlur, sex kontrabassar, fjögur horn, þrír trompetar o.s.frv.). Rétt eins og í upphafi Haydn-sinfóníunnar varð ég aftur hissa á inngangstempóinu en að þessu sinni var það löturhægt. Aðalstefið sem fiðlurnar kynna til sögunnar var hins vegar gangandi (kannski hefði mátt draga seiminn aðeins meira í blábyrjun aðalstefsins). Kaflinn einkenndist hins vegar af myndum sem Hannigan dró upp með tempóbreytingum hér og þar og tónlistin fékk sannarlega að „anda“. Allar þessar breytingar virkuðu hins vegar fullkomlega eðlilegar og hvergi var vart við tilgerð (eins og stundum vill brenna við í Mahler). Konsertmeistarinn, Sigrún Eðvaldsdóttir, átti stórleik á fiðluna í öðrum þætti (sem stillt er heiltón ofar) og myndaði góðan kontrast. Þriðji kaflinn var hægur, mjög hægur (rúmar 23 mínútur; Bruno Walter, samstarfsmaður og vinur Mahlers, var rúmar 17 mínútur með sama kafla). Það að stjórna hægt og láta slíkt ganga upp er ekki allra; spennan fellur oft niður og samhengið brenglast. Það átti ekki við hjá Hannigan sem mótaði kaflann af næmni. Túlkunin var gullfalleg. Lokakaflinn er svo stuttur þar sem Hannigan söng ljóðið með bjartri sópranrödd af innlifun og mikilli dýnamík. Mikið var um frábært einstaklingsframtak í hljómsveitinni og ég nefni sérstaklega þau Stefán Jón Bernharðsson (horn), Arngunni Árnadóttur (klarínett) og Juliu Hantschel (óbó).
Ég er stundum spurður að því hvort stjórnandi skipti virkilega máli. Hann gerir það svo sannarlega eins og Barbara Hannigan sýndi okkur með eftirminnilegum hætti; meðal annarra orða, hljómsveitarstjórar eru ekki allir jafn góðir – svo vægt sé til orða tekið. Hannigan sló fyrst í gegn með Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir réttu ári (með mjög ólíku prógrammi) og ég hefði sagt eftir tónleikana nú (og þá) að henni ætti umsvifalaust að bjóða aftur. Sinfóníuhljómveit Íslands hefur hins vegar tekið af mér ómakið því hún er væntanleg aftur í apríl á næsta ári (2024) með efnisskrá sem samanstendur af Strauss og Poulenc.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í júní 2023