Beethoven.is
Gagnrýni · 1. júní 2023

Úthugsaður Beethoven en slakari Mahler

Tónskáld
Ludwig van Beethoven, Gustav Mahler
Flytjendur
Isabelle Faust
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eva Ollikainen

Isabelle leikur Beethoven

Beethoven: Fiðlukonsert ★★★★★

Mahler: Sinfónía nr. 5 ★★★½

Tónlist: Ludwig van Beethoven og Gustav Mahler. Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen. Einleikari: Isabelle Faust. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Tibor Gyenge. Tónleikar í Eldborg Hörpu föstudaginn 19. maí 2023.

Isabelle Faust er Íslendingum að góðu kunn. Þessi þýski fiðluleikari var staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands tónleikaárið 2010-2011 og lék hún þá meðal annars fiðlukonserta Stravinskíjs og Beethovens en seinna verkið var einmitt á efnisskrá tónleikanna í Hörpu föstudagskvöldið 19. maí síðastliðinn. Faust kom hins vegar síðast fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu í apríl 2019, þegar hún lék fiðlukonsert Brahms og þannig háttaði einmitt til að Mahler var einnig á dagskrá á þeim tónleikum; þá lék hljómsveitin 10. sinfóníuna en nú var 5. sinfónían á efnisskránni. Meira um flutning hennar á eftir.

Tónskáldaferli Ludwigs van Beethovens (1770-1827) er jafnan skipt í þrjú tímabil og nær hið fyrsta fram til ársins 1802, miðtímabilið frá 1802 til 1812 og hið síðasta frá 1812 uns Beethoven lést í Vínarborg í mars 1827, kominn að fótum fram. Fiðlukonsertinn var frumfluttur á Þorláksmessu árið 1806 og tilheyrir hann því miðtímabilinu. Þetta tímabil er stundum nefnt „hetju“-tímabilið en á því samdi tónskáldið meðal annars sinfóníur frá númer 3 til 8 (sú níunda beið lokatímabilsins), síðustu tvo píanókonsertana og píanósónötur á borð við Waldstein (nr. 21), Appassionata (nr. 23) og „Les Adieux“ (nr. 26). Fiðlukonsertinn er sá eini sem Beethoven samdi sinnar tegundar en hann er í hópi mest fluttu fiðlukonserta tónbókmenntanna og hefur margsinnis verið hljóðritaður. Isabelle Faust hefur til að mynda hljóðritað hann tvisvar, fyrst með Fílharmóníusveitinni í Prag og Jirí Belohlávek (Harmonia Mundi, 2007) og aftur fimm árum síðar með Mozart-hljómsveitinni og Claudio Abbado (Harmonia Mundi, 2012). Hvorttveggja eru mjög fínar hljóðritanir. Það sama má segja um flutninginn í Hörpu.

Það sem einkenndi leik Faust var kannski fyrst og fremst ótrúleg dýnamík en flutningurinn fór á köflum niður í pianississimo (ppp) en svo komu líka kaflar í fortissimo (ff). Segja má að hver hending hafi verið úthugsuð án þess þó að vera á kostnað heildarmyndar, það er að segja Faust teiknaði upp stóra mynd með mörgum smáatriðum. Tónninn var silkimjúkur og afar fallegur. Flutningurinn var aldrei þvingaður og hvergi bar á tilgerð (eins og stundum gerist þegar mikil dýnamík er notuð). Faust leikur fyrsta kaflann venjulega fremur hratt (bæði á tónleikum og hljóðritunum) en flutningur hennar var sannfærandi og tempóið hljómaði alltaf eðlilega (auk þess sem flutningur á verkum Beethovens er alltaf að verða hraðari og hraðari, einkum vegna áhrifa upprunaskólans). Mikið og gott samband Faust við hljómsveitarstjórann, Evu Ollikainen, tryggði samhæfðan flutning og leikur hljómsveitarinnar, til að mynda í löngum inngangi konsertsins, var með ágætum. Fyrsta flokks flutningur sem var (skiljanlega) gríðarlega vel tekið af áhorfendum.

Eftir hlé var fimmta sinfónía Gustavs Mahlers (1860-1911) á efnisskránni. Þetta er hvorki lengsta sinfónía tónskáldsins (það er sú þriðja) né sú stærsta í sniðum (það er sú áttunda) en sú fimmta er erfiðust að láta ganga upp á tónleikum (eða þá á upptökum). Dæmigerður flutningur er um 70 mínútur en það fer mikið eftir því hver er að stjórna. Bruno Walter (vinur og samstarfsmaður Mahlers) var til að mynda um 60 mínútur með verkið en Bernard Haitink stjórnaði því á um 77 mínútum. Túlkun Evu Ollikainen var í hraðari kantinum, um 68 mínútur, en lengdin segir auðvitað ekki nema hluta sögunnar.

Mahler samdi verkið á árunum 1901-1902 en hann hafði gengið að eiga Ölmu Schindler í mars 1902. Mahler – sem var þekktari á sinni tíð sem hljómsveitarstjóri en tónskáld – var á þessum tíma óperustjóri í Vínarborg og aðalstjórnandi Vínarfílharmóníunnar og hafði því í nægu að snúast, enda nýtti hann aðallega sumrin til þess að semja. Fimmtu sinfóníunni var, eins og flestum sinfóníunum, illa tekið af gagnrýnendum en sjálfur sagði Mahler þá ekki skilja verkið. Hann sagðist þannig sjálfur kjósa að stjórna verkinu hálfri öld eftir sinn dag; þá yrðu viðtökurnar aðrar. Það reyndist rétt, enda tóku vinsældir Mahlers sem tónskálds ekki kipp fyrr en eftir seinna stríð (ekki síst fyrir tilstilli Bernsteins).

Fimmta sinfónían kallar á gríðarlega stóra hljómsveit; þannig voru til að mynda tólf fyrstu fiðlur, átta kontrabassar, sex horn og fjórir trompetar á sviðinu í Hörpu. Verkið er fullt af andstæðum, til að mynda hvað varðar styrkleika. Það hefst á sorgarmarsi og í upphafi hans heyrist lúðrakall sem Joris De Rijbel – leiðandi trompetleikarinn á tónleikunum – lék firnavel (þetta stef kynnti Mahler raunar fyrst til sögunnar í fjórðu sinfóníu sinni en það er annað mál). Eftir stormasaman annan þátt tekur við gletta (scherzó) en í þeim þætti fór Stefán Jón Bernharðsson – leiðandi hornleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands – á kostum en hann lék fylgirödd (obbligato) hornsins frábærlega. Eftir hægan fjórða þátt tekur svo við rondó þar sem Mahler beitir meðal annars kontrapunkti af listfengi.

Það voru ekki bara þeir Joris De Rijbel og Stefán Jón Bernharðsson sem stóðu sig vel við flutninginn. Hljómsveitin var fín og verkið var þannig vel leikið. Túlkun Evu Ollikainen var hins vegar furðu flöt og líflaus. Þá á ég ekki við dýnamíkina, sem var býsna breið, heldur var túlkunin ekki bara hröð (sem er í góðu lagi), heldur furðu stíf og nánast enga núansa að finna í henni. Raddskráin er flókin og Mahler kallar oft á tempóbreytingar sem mér fannst Eva oft skauta yfir. Þá var balansinn ekki alltaf góður, enda heyrðist oft lítið í tréblásurum nema þegar hljóðfæraleikararnir lyftu hljóðfærum sínum upp. Yfirbragðið var því kalt og spennan datt alveg niður í síðasta þættinum. Undir lok hans er fallegur brass-kórall sem Eva gerði ekki nærri nógu mikið úr.

Ég er í sjálfu sér ekki endilega að kalla eftir einhvers konar „bernsteinskri“ túlkun og vissulega er óþarfi að kreista verkið til hins ýtrasta, tilfinningalega séð, en það er líka í lagi að slaka aðeins á hér og þar og leyfa tónlistinni að njóta sín. Dæmi um það var fjórði kaflinn þar sem mér fannst hreinlega hraðinn vera á kostnað þess sem tónlistin er að segja. Ég er kannski ekki að biðja um 14 mínútna túlkun eins og Haitink í Berlín en túlkun Evu var undir níu mínútum, sem er hratt.

Heilt yfir fannst mér því fimmta sinfónía Mahlers vel spiluð af Sinfóníuhljómsveit Íslands en túlkun Evu Ollikainen að sama skapi ekkert spennandi.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í júní 2023

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu