Engir farþegar í enskri veislu
- Tónskáld
- Henry Purcell, Gerald Finzi, Benjamin Britten
- Flytjendur
- Rúnar Óskarsson, Frank Hammarin
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Kammersveit Reykjavíkur, Mirian Khukhunaishvili
Kammersveitartónleikar
★★★★
Tónlist: Sjakonna í g-moll eftir Henry Purcell (umritun eftir Britten); Konsert fyrir klarínett og strengi op. 31 eftir Gerald Finzi og Serenaða fyrir tenór, horn og strengi op. 31 eftir Benjamin Britten. Hljómsveitarstjóri: Mirian Khukhunaishvili. Einsöngvari: Stuart Skelton. Einleikarar: Rúnar Óskarsson (klarínett) og Frank Hammarin (horn). Kammersveit Reykjavíkur. Konsertmeistari: Una Sveinbjarnardóttir. Tónleikar í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 14. maí 2023.
Það var af mikilli framsýni að Rut Ingólfsdóttir stofnaði, ásamt félögum sínum, Kammersveit Reykjavíkur árið 1974 og fagnar sveitin því hálfrar aldar afmæli á næsta ári. Markmiðið var að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist, allt frá barokktímabilinu og fram til nútímans. Efnisskrá sveitarinnar er talin í hundruðum verka, nýrra og gamalla, og hefur hún meðal annars veitt íslenskum samtímatónskáldum ómetanlegt tækifæri til að koma verkum sínum á framfæri. Það verður því spennandi að sjá hvað verður á dagskrá sveitarinnar á komandi afmælisári.
Hvað um það, sunnudaginn 14. maí síðastliðinn var boðið upp á enska veislu í Norðurljósasal Hörpu: Purcell (í umritun Brittens), Finzi og Britten. Á þessum tónleikum samanstóð Kammersveit Reykjavíkur af strengjum og var skipuð tuttugu hljóðfæraleikurum (sex fyrstu fiðlum, fimm öðrum fiðlum, fjórum víólum, þremur sellóum og tveimur kontrabössum). Stjórnandi var Mirian Khukhunaishvili.
Henry Purcell (1659-1695) samdi Sjakonnu (Chaconne) sína í kringum árið 1680 og var verkið upphaflega samið fyrir fjögur strengjahljóðfæri en umritun Benjamins Brittens er fyrir fullskipaða strengjasveit. Sjakonna er ýmist hægur dans í þrískiptum takti eða þá verk sem byggt er yfir síendurtekinn hljómagang. Helsta framlag Brittens var að bæta við styrkleikabreytingum og það kom bersýnilega í ljós í flutningnum í Hörpu. Leikur Kammersveitar Reykjavíkur var fágaður og samhentur; styrkleikabreytingar augljósar og spilamennskan fumlaus, allt frá tutti-köflum niður í lokin sem leikin voru af fjórum hljóðfæraleikurum. Verkið er ekki langt, um það bil sjö mínútur í flutningi, en það er afar heillandi. Khukhunaishvili stjórnaði sveitinni af öryggi (og oft brosandi).
Gerald Finzi (1901-1956) var sennilega þekktastur á sinni tíð fyrir kórverk sín og óeigingjarnt starf í að aðstoða bæði önnur tónskáld sem og að safna saman og gefa út þjóðlög. Hann er í dag best þekkur fyrir annars vegar sellókonsert sinn og svo klarínettukonsertinn (op. 31) sem einmitt hljómaði í Hörpu nú. Verkið skiptist í þrjá þætti: Að mörgu leyti leitandi fyrsta þátt (Allegro vigoroso), lýrískan annan þátt (Adagio ma senza rigore) og svo tápmikið rondó í lokaþættinum (Rondo, allegro giocoso). Konsertinn, sem var frumfluttur árið 1949, var nú leikinn af Rúnari Óskarssyni og fórst honum það vel úr hendi. Flutningurinn markaðist af öryggi, tónninn var fallegur og tæknin fumlaus. Samleikur Rúnars og hljómsveitarinnar var eins og best verður á kosið og Khukhunaishvili stjórnaði öllu saman af sama örygginu og í fyrsta verkinu. Ég hjó sérstaklega eftir því hvað hann hafði allar innkomur á hreinu.
Eftir hlé var svo flutt serenaða eftir Benjamin Britten (1913-1976) fyrir tenór, horn og strengi. Verkið var samið árið 1943 (að beiðni hornleikarans Dennis Brains) og telst í hópi helstu verka tónskáldsins frá stríðsárunum (raðast kannski næst á eftir óperunni Peter Grimes). Það er samið við sex (nætur)ljóð eftir bresk ljóðskáld (þar á meðal Tennyson, Blake og Keats) en ljóðunum sex er fylgt úr hlaði með nokkurs konar forspili og eftirspili fyrir einleikshorn. Með einsöngshlutverkið fór enginn annar en Stuart Skelton, heimsfrægur hetjutenór, og á hornið lék Frank Hammarin. Samkvæmt fyrirskipan tónskáldsins skal forspilið og eftirspilið leikið á náttúruhorn (ventlalaust horn) og gerði einleikarinn, Frank Hammarin, það að mestu vel. Intónasjónin er að vísu alltaf erfið á náttúruhorn en fimmundarstökkið í byrjun var óaðfinnanlegt. Hornparturinn í sönglögunum sex er líka afar snúinn (og mikið um stökk) en þar var sömu sögu að segja og í forspili og eftirspili; Frank Hammarin lék af öryggi og yfirvegun og þó svo að einstaka tónar hafi „rispast“ var flutningurinn afar músíkalskur.
Ég átti hins vegar fyrir fram von á því að rödd Stuarts Skeltons væri kannski númeri of stór í þetta verk (sem var skrifað fyrir Sir Peter Pears) en annað kom á daginn. Skelton hefur þann mikla hæfileika að geta „skalað“ röddina niður og sungið undurblítt (ekki ósvipað og annar frægur hetjutenór, Jon Vickers) en hann söng líka á köflum út, það er að segja þegar það átti við, og þá tók undir í salnum. Jafnvægið á milli horns, tenórs og hljómsveitar var fínt og hendingar oftast nær algjörlega samtaka.
Þetta voru fínir tónleikar og Kammersveit Reykjavíkur og aðstandendum hennar til sóma. Allir lögðust á eitt og útkoman var samhent og fáguð og engir farþegar með í för, enda reynir kammertónlist oft meira á einstaka hljóðfæraleikara því smæðin gerir það að verkum að nánast allt heyrist. Utan um allt hélt Mirian Khukhunaishvili og gerði það vel.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í maí 2023