Fallegt en of stutt
- Tónskáld
- Hreiðar Ingi Þorsteinsson, Anna Þorvaldsdóttir, Gunnsteinn Ólafsson, Jón Ásgeirsson, Oliver Kentish, Árni Harðarson, Þorkell Sigurbjörnsson, Þorkell Atlason
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Háskólakórinn, Gunnsteinn Ólafsson
Hrafnar
★★★½
Verk eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Önnu Þorvaldsdóttur, Gunnstein Ólafsson, Jón Ásgeirsson, Oliver Kentish, Árna Harðarson, Þorkel Sigurbjörnsson og Þorkel Atlason. Háskólakórinn. Gunnsteinn Ólafsson (stjórnandi). Háskólakórinn, árið 2023. Heildartími: 34:56 mín.
Háskólakórinn var stofnaður árið 1972 og fagnaði því fimmtugsafmæli sínu í fyrra en samkvæmt lögum sem um kórinn gilda er markmið hans „að gefa félögum hans kost á að kynnast tónlist af ýmsu tagi og veita um leið öðrum innsýn í heim tónlistarinnar“.
Upptökur á nýjum geisladiski kórsins, Hrafnar, fóru fram í Neskirkju frá 2017 til 2022 (það er að segja fyrir og eftir kóvid) og upptökur voru í höndum Árna Möllers. Upptökum stjórnaði hins vegar Sverrir Guðjónsson. Hljóðið er fínt. Enginn bæklingur fylgir geisladisknum en honum má hlaða niður af heimasíðu kórsins (https://kor.hi.is/) og samkvæmt upplýsingum þaðan er Háskólakórinn að jafnaði skipaður 60-70 nemendum við Háskóla Íslands, bæði íslenskum sem og erlendum. Í rafræna bæklingum fylgja textar (á íslensku og ensku).
Verkefnaval kórsins að þessu sinni er íslenskt, þar á meðal verk eftir kórstjórann sjálfan, Gunnstein Ólafsson („Heilög Sesselja“ og „Nú vaknar þú mín þjóð“), en mér fannst bitastæðasta verkið á disknum vera „Heyr þú oss himnum á“ eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Það hefur verið hljóðritað að minnsta kosti fjórum sinnum áður (Schola Cantorum, Mótettukórinn, Hymnodia og Kór Clare College, Cambridge) og ég minnist þess ekki að hafa heyrt það flutt jafn hratt og Háskólakórinn gerir á hinum nýja diski. Verkið gengur eiginlega ekki upp í þessu tempói, það er að segja fær ekki að njóta sín til hlítar.
Um kórsönginn má segja að hann er fínn, balans góður og hljómurinn giska fallegur. Ég get þó ekki annað en gert athugasemd við hversu stutt prógrammið á disknum er, enda er hann ekki nema 35 mínútur. Það er of stutt og kórinn hefði vel getað bætt við efnisskrána, sérstaklega í ljósi þess á hve löngu tímabili diskurinn var hljóðritaður. Það sem heyra má er hins vegar að mestu gott.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í maí 2023