Birta vonar og huggunar
- Tónskáld
- Daniel Elder, Auður Guðjohnsen, Galina Grigorjeva, Hreiðar Ingi Þorsteinsson, Haukur Tómasson, Ola Gjeilo, Þóra Marteinsdóttir, Paul Mealor, Björn Thorarensen, Sigurður Sævarsson, Pawel Łukaszewski, Pärt Uusberg, Eric Whitacre
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Schola Cantorum Reykjavicensis, Hörður Áskelsson
Meditatio II. Music for mixed choir
★★★★★
Verk eftir Daniel Elder, Auði Guðjohnsen, Galinu Grigorjeva, Hreiðar Inga Þorsteinsson, Hauk Tómasson, Ola Gjeilo, Þóru Marteinsdóttur, Paul Mealor, Björn Thorarensen, Sigurð Sævarsson, Pawel Łukaszewski, Pärt Uusberg og Eric Whitacre. Útsetningar eftir Hafstein Þórólfsson og John Hearne. Schola Cantorum Reykjavicensis. Hörður Áskelsson (stjórnandi). BIS 2618, árið 2023. Heildartími: 61:20 mín.
Kammerkórinn Schola Cantorum var stofnaður árið 1996 og hefur því starfað í rúman aldarfjórðung. Kórinn hefur sent frá sér fjölda geisladiska, þar á meðal árið 2016 þegar diskurinn Meditatio kom út (BIS 2200). Þar söng kórinn verk sem hann hefur sungið á tónleikum á allraheilagramessu á starfstíma sínum, það er að segja tónlist sem túlkar bæði hugsanir og tilfinningar mannsins gagnvart dauðanum, ýmist við nýlega eða aldagamla texta úr sálumessuhefð kirkjunnar. Kórinn hefur nú hljóðritað nokkurs konar framhald þessa geisladisks, enda ber hann heitið Meditatio II, og kom nýverið út hjá sænska forleggjaranum BIS. Halldór Hauksson skrifar ljómandi góðan skýringartexta sem fylgir hinum nýja geisladiski og segir þar meðal annars um tónverkin: „Þau fjalla um sorg og söknuð á nærgætinn hátt og varpa birtu vonar og huggunar á slóð eftirlifenda.“ Verkin, með einni undantekningu, eru samin á 21. öldinni og þannig háttar raunar til að af sjö íslenskum tónskáldum sem eiga verk á disknum eru fimm þeirra núverandi eða þá fyrrverandi félagar í Schola Cantorum.
Flutningurinn er fyrsta flokks og hljóðið (eins og nánast alltaf hjá BIS) sallafínt en um er að ræða upptökur sem gerðar voru í Skálholtskirkju í september árið 2021. Jens Braun stjórnaði upptökum. Schola Cantorum hefur fyrir löngu skipað sér á stall sem einn besti kammerkór landsins (og þótt víðar væri leitað) og músíkalskur flutningur kórsins undir stjórn Harðar Áskelssonar á nýja geisladisknum er eftirminnilegur. Kórinn (21 söngvari) hefur á að skipa fallegum röddum en þær Rakel Edda Guðmundsdóttir, Ragnheiður Sara Grímsdóttir og Vigdís Sigurðardóttir syngja einsöng á diskunum í verkum eftir Daniel Elder („Elegy“) og útsetningu Johns Hearnes á „Fagurt er í fjörðum“. Textar (á íslensku og ensku) fylgja með.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í maí 2023