Beethoven.is
Fróðleikur · 8. apríl 2023

Klassísk tónlist um páskana

Páskarnir eru auðvitað stærsta hátíð kirkjuársins og mjög langt er síðan sú hefð myndaðist að flytja þá verk sem fönguðu inntak hátíðarinnar, oftast nær kirkjuleg en þó ekki alltaf. Of langt mál væri að tína til alla þá tónlist sem hæfir páskum en hér verður stiklað á stóru og sjö verk nefnd sem fólk getur notið, hvort heldur sem er í dymbilviku eða yfir páskana sjálfa.

1. Tallis: The Lamentations

Enska tónskáldið Thomas Tallis (1505-1585) samdi kórverkið The Lamentations á sjötugsaldri, sennilega á árabilinu 1565-1570. Hann hóf ferilinn sem kirkjutónskáld og samdi þá mikilfengleg verk á borð við mótettuna Salve intemerata virgo en fékk síðar stöðu við hirðina. Verkin sem hann samdi á efri árum – þá við enska texta – eru gjörólík þeim eldri, þar á meðal The Lamentations sem jafnan er flutt á skírdag. Textinn er sóttur í Jeremíabók Biblíunnar.

Upptaka sem ég mæli með: Theater of Voice; Hillier (Harmonia Mundi).

2. Allegri: Miserere me, Deus

Tónsetning ítalska prestsins og tónskáldsins Gregorios Allegris (um 1582-1652) á 51. Davíðssálmi er fræg fyrir hátt liggjandi sópranstrófur en verkið er skrifað fyrir tvo kóra, annan fjögurra parta og hinn fimm parta. Verkið var lengst í einkaeign Páfagarðs og einungis kór Sixtínsku kapellunnar leyfðist flutningur þess. Mozart var hins vegar á ferð í Róm árið 1770, þá fjórtán ára gamall, og tókst að skrifa verkið niður eftir að hafa hlýtt á það flutt (sagan segir ýmist einu sinni eða tvisvar) og þannig komst þetta gullfallega kórverk meðal annars í umferð.

Upptaka sem ég mæli með: Choir of the King's College, Cambridge; Cleobury (Warner).

3. Bach: Jóhannesarpassía

Johann Sebastian Bach (1685-1750) er auðvitað eitt helsta tónskáld sögunnar og verk hans eru hápunktur barokktímabilsins. Tvær passíur hans hafa varðveist og Jóhannesarpassían er sú eldri (og styttri). Verkið var frumflutt í Leipzig á föstudaginn langa árið 1724. Passíurnar skiptast í söngles, aríur, kórþætti og sálmalög. Mestur hluti sönglesanna (tónsettur texti guðspjallsins) er sunginn af tenór, það er að segja guðspjallamanni (Evangelist). Jóhannesarpassían tekur um tvær klukkustundir í flutningi.

Upptaka sem ég mæli með: Crook; Lika; Kooy; Schlick; Patriasz; Kendall; Collegium Vocale; Orchestre de la Chapelle Royal; Herreweghe (Harmonia Mundi).

4. Bach: Matteusarpassía

Matteusarpassían er viðamesta kórverk sem Bach samdi. Hún er í 68 köflum og tekur um þrjár klukkustundir í flutningi. Verkið var frumflutt í Leipzig á föstudaginn langa árið 1727 og þegar mest lætur hljóma þar átta radda tvöfaldur kór og tvær hljómsveitir. Píslarsögunni hefur aldrei verið betur lýst í tónmáli en verkið er – eins og önnur verk Bachs – gríðarlega erfitt í flutningi. Til eru fjölmargar upptökur af Matteusarpassíunni, bæði í nútímaflutningi og samkvæmt upprunaskólanum, en hvergi er guðspjallamaðurinn, Peter Schreier, betri en einmitt hjá Karajan (sem ég mæli sérstaklega með þótt kórar séu oft þunglamalegir).

Upptaka sem ég mæli með: Schreier; Fischer-Dieskau; Janowitz; Ludwig; Laubenthal; Berry; Diakov; Wiener Singverein; Chor der Deutschen Oper Berlin; Berliner Philharmoniker; Karajan (DG).

5. Händel: Messías

Messías er frægasta óratoría Georgs Friedrichs Händels (1685-1759) og Hallelúja-kórinn þekkja allir. Verkið var frumflutt í Dyflinni í apríl árið 1742 en það tók tónskáldið einungis 24 daga að ljúka við fullbúið handrit. Vísast leitaði þó Händel í smiðju eldri verka sinna við ritun Messíasar en afköstin eru eftir sem áður undraverð. Verkið skiptist í forleik, söngles, aríur og kórþætti og fjallar um fæðingu Krists, krossfestingu og upprisu. Messías er eitt mest flutta verk tónlistarsögunnar.

Upptaka sem ég mæli með: Schlick; Piau; Scholl; Padmore; Berg; Les Arts Florissant; Christie (Harmonia Mundi).

6. Haydn: Sjö síðustu orð endurlausnarans á krossinum

Það var dómkirkjan í Cadiz á Spáni (Oratorio de la Santa Cueva) sem kostaði verk Josephs Haydns (1732-1809) um sjö síðustu orð Krists á krossinum. Frumflutningur þess fór fram á föstudeginum langa árið 1787. Verkið er upphaflega samið fyrir hljómsveit en skömmu eftir frumflutninginn útsetti Haydn það fyrir strengjakvartett og síðar fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit. Enn fremur er til útgáfa fyrir einleikspíanó.

Upptaka sem ég mæli með: Berliner Philharmoniker; Muti (Warner).

7. Wagner: Parsifal

Richard Wagner (1813-1883) er sennilega síðasti maðurinn sem ætti að kenna okkur eitthvað um kristindóminn en síðasta ópera hans, Parsifal, var frumflutt í Bayreuth í Þýskalandi í júlí árið 1882. Sagan gerist að hluta til á föstudaginn langa og stendur í huga undirritaðs næst passíum Bachs á páskum. Sjálfur kallaði Wagner verkið ekki óperu, heldur „helgihátíðarsviðsleik“ (þ. Bühnenweihfestspiel) en þar segir af riddurum hins heilaga grals sem hinn illi Klingsor ógnar; aðeins pilturinn Parsifal fær bjargað þeim frá glötun.

Upptaka sem ég mæli með: Kollo; Ludwig; Kelemen; Frick; Fischer-Dieskau; Hotter; Wiener Philharmoniker; Solti (Decca).

Magnús Lyngdal Magnússon

Greinin birtist í Morgunblaðinu í apríl 2023

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu