Beethoven.is
Gagnrýni · 9. mars 2023

Fordæmd en hamingjusöm

Tónskáld
Giacomo Puccini
Flytjendur
Hye Youn Lee, Egill Árni Pálsson, Arnheiður Eiríksdóttir, Hrólfur Sæmundsson, Snorri Wium, Karin Björg Torbjörnsdóttir, Unnsteinn Árnason, Viðar Gunnarsson, Jón Svavar Jósefsson, Jón Stefánsson, Sigurlaug Knudsen, Hulda D. Proppé, Bernedett Hegyi, Tómas Ingi Harðarson, Arnar Dan, Hjalti Rúnar Jónsson, Níels Thibaud Girerd
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Kór Íslensku óperunnar, Hljómsveit Íslensku óperunnar, Levente Török

Madama Butterfly

★★★★

Tónlist: Giacomo Puccini. Texti: Luigi Illica og Giuseppe Giacosa. Hljómsveitarstjóri: Levente Török. Leikstjórn og leikmynd: Michiel Dijkema. Búningar: María Th. Ólafsdóttir. Lýsing: Þórður Orri Pétursson. Kórstjórn: Magnús Ragnarsson. Konsertmeistari: Pétur Björnsson. Söngvarar: Hye Youn Lee (Cio-Cio-San), Egill Árni Pálsson (Pinkerton), Arnheiður Eiríksdóttir (Suzuki), Hrólfur Sæmundsson (Sharpless), Snorri Wium (Goro), Karin Björg Torbjörnsdóttir (Kate Pinkerton), Unnsteinn Árnason (keisaralegur fulltrúi), Viðar Gunnarsson (Bonze), Jón Svavar Jósefsson (Yamadori), Jón Stefánsson (Yakuside), Sigurlaug Knudsen (móðir Cio-Cio-San), Hulda D. Proppé (eldri frænka), Bernedett Hegyi (yngri frænka), Tómas Ingi Harðarson (Dolore), Arnar Dan, Hjalti Rúnar Jónsson og Níels Thibaud Girerd (ýmis hlutverk). Kór og hljómsveit Íslensku óperunnar. Íslenska óperan frumsýndi í Eldborg Hörpu 4. mars 2023.

Engum blöðum er um það að fletta að Giacomo Puccini (1858-1924) var arftaki Giuseppes Verdis (1813-1901) og hann er síðastur ítalskra tónskálda til að hafa raunveruleg áhrif á þróun óperuformsins. Eftir hans daga tóku að vísu önnur tónskáld við en ekkert þeirra hafði jafn djúpstæð áhrif á tónlistarsöguna. Stíllinn sem Puccini þróaði er kenndur við raunsæi (eða verismo) og hann var einn helsti forvígismaður hans. Kannski má segja að verk hans í öndverðu hafi átt rætur sínar að rekja til rómantísku stefnu 19. aldar en það breyttist smám saman með verkum á borð við óperuna Manon Lescaut frá árinu 1893; hún var frumflutt viku áður en síðasta ópera Verdis, Falstaff, var fyrst sett á svið.

Sem raunsæismaður lýsti Puccini minnstu smáatriðum í umhverfinu í raddskrám sínum. Við heyrum stef sem geta táknað tilfinningar, persónur, atburði eða jafnvel hugarástand í verkum hans. Þar með er ekki sagt að Puccini hafi verið einhvers konar mínimalisti, síður en svo. Hann var meistari
laglínunnar sem oft hljómar hvorttveggja í örfínni kammerútfærslu eða þá af fullum krafti í allri hljómsveitinni. Frægustu laglínur Puccinis þekkja enda allir.

Það gekk ekki alltaf vel hjá Puccini. Frumsýningin á Madama Butterfly á Scala í Mílanó hinn 17. febrúar 1904 misheppnaðist hrapallega. Áhorfendur byrjuðu snemma að ókyrrast og þegar á leið sýninguna heyrðist varla í tónlistinni fyrir bauli, hrópum og köllum. Verkið var því sem næst púað af sviðinu og ekki tók betra við í blöðum dagana á eftir. Ýmsir hafa leitt að því getum að yrkisefnið og japanska umhverfið hafi verið áhorfendum í Mílanó framandi. Við það bættist að innan um japanska sviðsmynd birtust Pinkerton og Sharpless í vestrænum búningum og stungu þannig í stúf við leikmyndina. En það var kannski einna helst strúktúrinn í óperunni sem Puccini hafði sjálfur misreiknað; þannig var verkið í tveimur þáttum og var sá fyrri um fimmtíu mínútur en sá seinni hálfur annar tími. Loks var óperan líka illa æfð, enda var tónskáldið að gera breytingar á raddskránni fram á elleftu stundu.

Um fjórum mánuðum eftir hörmungarnar í Mílanó var nokkuð rækilega endurskoðuð gerð verksins færð upp á nýjan leik, að þessu sinni í litlu leikhúsi í Brescia hinn 28. maí 1904 og þá sló verkið í gegn. Puccini breytti því að vísu enn á ný – lítillega – og er Madama Butterfly til í alls fimm gerðum. Síðast endurskoðaði hann raddskrána árið 1907 og er það sú gerð sem venjulega er flutt í dag. Óperan fór í kjölfarið sigurför um heiminn og var snemma færð upp í bæði New York og Lundúnum. Madama Butterfly var fyrst færð upp í Þjóðleikhúsinu árið 1965 en Íslenska óperan tók verkið síðast til sýninga árið 1995; því eru liðin tæp 30 ár frá því að áhorfendur sáu óperuna síðast á Íslandi. Það var því kominn tími til.

Sögusvið Madama Butterfly er í grennd við Nagasaki í Japan laust eftir aldamótin 1900. Leikstjóri og leikmyndahönnuður uppfærslu Íslensku óperunnar, sem frumsýnd var í Eldborgarsal Hörpu á laugardag, var Hollendingurinn Michiel Dijkema. Leikmyndin var falleg í einfaldleika sínum en um leið dálítið íhaldssöm. Það sama á kannski við um leikstjórnina. Þannig var ekki mikil áhætta tekin, heldur hélt Dijkema sig við sáraeinfalt stef; mikinn mun á gleði og harmi sem í sjálfu sér gekk alveg upp. Mér fannst þó stundum til trafala mjög ýktur munur á japanska menningarheiminum og þeim ameríska. María Th. Ólafsdóttir hannaði búninga sem voru vel útfærðir og í takt við leikstjórnina. Lýsingin, sem var í höndum Þórðar Orra Péturssonar, var eins og best verður á kosið og ýtti á köflum undir dramatík verksins.

Sönglega séð bar hin kóreska Hye Youn Lee (Cio-Cio-San) af. Hlutverkið kallar á að söngkonan sé nánast á sviðinu allan tímann en í verkinu er Cio-Cio-San 15 ára þegar óperan hefst og því 18 ára þegar henni lýkur. Hún sýnir af sér barnslega einlægni í fyrstu tveimur þáttunum en staðfestu og hugrekki í þeim síðasta. Þetta er gríðarlega erfitt hlutverk sem kallar á dramatískan sópran eða þá lýrískan-
spintó-sópran en röddin þarf í senn að vera full barnslegrar einfeldni (samanber þegar Sharpless les bréfið frá Pinkerton í öðrum þætti) og stáls til þess að ná í gegnum hljómsveitina í lokaaríu verksins.

Öllu þessu og meira til skilaði Lee með eftirminnilegum hætti. Þannig negldi hún bæði stóru aríu annars þáttar, „Un bel dì, vedremo“, sem og lokaaríu verksins („Tu? Tu? Piccolo iddio!“). Ástardúettinn í lok fyrsta þáttar var afar fallega sunginn af henni og Agli Árna Pálssyni (Pinkerton). Þá lék Lee afar vel þessa viðkvæmu stúlku sem kann að vera fordæmd af samlöndum sínum en er eftir sem áður hamingjusöm. Sjálfur fór Egill Árni kannski ofurlítið varlega af stað en röddin er falleg og lokaaríuna sína í þriðja þætti, „Addio, fiorito asil“, söng hann vel og af innlifun. Arnheiður Eiríksdóttir (Suzuki) var líka ljómandi góð í sínu hlutverki og lék mjög vel en það reyndi auðvitað mest á hana – sönglega séð – í lokaþættinum. Af stærri hlutverkunum fannst mér kannski Hrólfur Sæmundsson (Sharpless) eiginlega ekki ná sér á strik, til að mynda í bréfaatriði annars þáttar („Ora noi“) sem var í of hröðu tempói (en þar er vitanlega ekki við Hrólf að sakast). Leikur hans var líka almennt of ýktur, enda Sharpless enginn kjáni og raunar sá Ameríkani verksins sem sýnir af sér mannlega reisn. Hér hefði leikstjórinn þurft að gera betur. Minni hlutverk voru vel sungin og nefni ég hér bæði Snorra Wium (Goro) og Viðar Gunnarsson (Bonze).

Sýningin tók rétt rúmlega tvo tíma og tíu mínútur í flutningi, án hléanna tveggja, sem er mjög í hraðari kantinum. Tempóin hjá hljómsveitarstjóra kvöldsins, Ungverjanum Levente Török, voru því almennt séð hröð. Fyrsti þáttur var þannig rétt tæplega 50 mínútur (sem er hratt) en hann slakaði aðeins meira á í þeim seinni tveimur. Hljómsveit Íslensku óperunnar var líka fremur fáliðuð miðað við Puccini-óperu (alls 56 hljóðfæraleikarar) en það bitnaði helst á strengjahljómnum sem var á köflum þunnur (enda einungis 8 fyrstu fiðlur og 6 aðrar fiðlur).

Sú óvenjulega leið var farin á sýningunni að stilla hljómsveitinni upp á sviðinu, það er að segja á bak við sviðsmyndina. Það er í sjálfu sér ekki alveg óþekkt fyrirkomulag erlendis en það er hljómsveitargryfja í Hörpu og það hefði farið betur á að nota hana, enda bar á köflum á ójafnvægi; hljómsveitin yfirgnæfði stundum söngvarana (að minnsta kosti þar sem ég sat). Hins vegar voru söngvarar og hljómsveit mjög samtaka sem er á að giska býsna snúið þegar söngvarar og hljómsveitarstjóri sjást ekki nema í gegnum myndavélar.

Kór Íslensku óperunnar hafði kannski ekki mikið að gera en það sem hann söng í sýningunni söng hann vel og af öryggi.

Heilt yfir var ég býsna hrifinn af sýningu Íslensku óperunnar á Madama Butterfly. Hye Youn Lee var algjörlega frábær og almennt séð var sýningin vel sungin. Þó svo að leikstjórn og leikmynd hafi verið í íhaldssamari kantinum gekk hugmyndafræði leikstjórans upp. Ég hefði kannski kosið stærri hljómsveit (og þá í gryfjunni) og almennt ívið hægari túlkun en margt var þó vel útfært í sýningunni.

Í tónlistarheiminum hér áður fyrr var það lenska að líta niður á verk Puccinis í ýmsum herbúðum. Meðal annarra orða: Hann er æsingamaður sem skortir næmni; einhvers konar almúgamaður meðal elítunnar. Kannski var þetta minnimáttarkennd, einhvers konar hræðsla við hið óþekkta – tilfinningar voru ekki bornar á torg. Þetta er breytt í dag og nú hefur enginn lengur horn í síðu Puccinis, síður en svo. Það mátti sannarlega heyra á viðtökunum í Hörpu síðastliðið laugardagskvöld og er það vel.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í mars 2023

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu