(Mjög) hægfara breyting
Hlutverk hljómsveitarstjórans eins og við þekkjum það í dag á sér langa sögu. Það að standa fyrir framan hljómsveitina og veifa sprota hefur þannig verið rakið aftur til tónskáldsins Louis Spohrs (1784–1859) sem árið 1820 stjórnaði hljómsveit með þessum hætti; önnur tónskáld fylgdu skjótt í kjölfarið, til að mynda Felix Mendelssohn (1809–1847) sem var kunnur hljómsveitarstjóri á sinni tíð. Síðar komu fram hljómsveitarstjórar sem svo að segja sérhæfðu sig í greininni, menn á borð við Hans von Bülow (1830–1894) og Felix Mottl (1856–1911). Gustav Mahler (1860–1911) var auðvitað þekktari sem hljómsveitarstjóri en tónskáld meðan hann lifði og um og eftir aldamótin 1900 markaði svo ungverski hljómsveitarstjórinn Arthur Nikisch (1855–1922) djúp spor í greininni. Sporgöngumenn hans voru menn á borð við Arturo Toscanini (1867–1957) og Wilhelm Furtwängler (1886–1954); og enn má nefna hljómsveitarstjóra eins og Herbert von Karajan (1908–1989) og Leonard Bernstein (1918–1990) sem gerðu garðinn frægan. Af nógu er að taka. Þið takið kannski eftir því að allir sem hér eru tíndir til eru karlmenn. Saga kvenhljómsveitarstjóra er mun styttri.
Það er margt að breytast til batnaðar í tónlistarheiminum en breytingarnar gerast vissulega hægt. Þannig má nefna að einungis um tíunda hluta af ríflega 100 atvinnumannahljómsveitum í Bandaríkjunum er stjórnað af konum, en þá er átt við stöðu tónlistarstjóra/aðalstjórnanda. Hlutfallið er kannski ekki mikið skárra austan hafs, en aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er til að mynda kona, Eva Ollikainen; samningur við hana var einmitt framlengdur nýverið til loka starfsársins 2025–2026.
Ýmsir hafa líka orðið berir að fordómum, þar á meðal hinn áhrifamikli finnski kennari í hljómsveitarstjórn við Sibelíusarakademíuna, Jorma Panula, sem og rússnesku hljómsveitarstjórarnir Vasilíj Petrenko og Júrí Temirkanov. Ummæli þeirra á borð við að konur eigi einungis að stjórna „femínískri“ tónlist og að helsti styrkur kvenna sé „veikleiki“ dæma sig auðvitað sjálf.
Miðað við þann fjölda kvenna sem nú nemur hljómsveitarstjórn, bæði austan hafs og vestan, má hins vegar búast við að kynjahlutfall stjórnenda eigi eftir að breytast á næstu misserum eða þá kannski áratugum sem auðvitað er (allt of) hægfara breyting.
Ef við lítum aðeins til baka má segja að Nadia Boulanger (1887–1979) hafi að vissu leyti verið brautryðjandi meðal kvenhljómsveitarstjóra. Það eru til eldri dæmi um kvenstjórnendur en Boulanger varð til að mynda fyrsta konan til þess að stjórna bæði Fílharmóníusveitinni í Lundúnum og Sinfóníuhljómsveitinni í Boston. Hún var líka gríðarlega áhrifamikill kennari og kenndi bæði tónskáldum (frá Aaron Copland til Philip Glass) og hljómsveitarstjórum á borð við Daniel Barenboim, Igor Markevitsj og Sir John Eliot Gardiner (auk þess sem hún kenndi tveimur mönnum sem gegnt hafa stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þeim Rico Saccani og Yan Pascal Tortelier). Einnig má nefna Söruh Caldwell (1924–2006) sem varð fyrsta konan til þess að stjórna við Metrópólítan-óperuna í New York.
Ég ætla hins vegar að beina sjónum sérstaklega að þeim konum sem eru starfandi í dag og nefna til sögunnar tíu áhugaverða kvenstjórnendur. Athugið að listinn er hvergi nærri tæmandi og kemur af sjálfu sér að deila má um valið.
Að námi loknu hóf hin bandaríska JoAnn Falletta (f. 1954) feril sinn sem gítarleikari og lék sem slíkur með til að mynda hljómsveit Metrópólítan-óperunnar og Fílharmóníusveitinni í New York. Hún hóf að stjórna hljómsveitum á 8. áratugi síðustu aldar og varð fyrsta konan til þess að taka við einni af stærri hljómsveitum Bandaríkjanna þegar hún varð tónlistarstjóri Fílharmóníusveitarinnar í Buffalo árið 1999. Falletta er mjög eftirsótt og hefur meðal annars stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hin bandaríska Marin Alsop (f. 1956) er sennilega eftirsóttust allra kvenkyns hljómsveitarstjóra í dag. Hún var meðal annars nemandi Leonards Bernsteins og hefur stjórnað mörgum helstu hljómsveitum veraldar. Árið 2007 tók hún við Sinfóníuhljómsveitinni í Baltimore og gegndi stöðu tónlistarstjóra þar í hálfan annan áratug. Árið 2013 varð Alsop fyrsta konan til þess að stjórna lokatónleikum PROMS-tónlistarhátíðar Breska útvarpsins (BBC).
Ástralinn Simone Young (f. 1961) varð árið 1993 fyrsta konan til þess að stjórna í Vínaróperunni og 12 árum síðar fyrst kvenna til þess að stjórna Vínarfílharmóníunni (2005). Árið 1997 stjórnaði hún í Vínaróperunni komin átta mánuði á leið. Young stýrði Ríkisóperunni í Hamborg í rétt tæpa tvo áratugi og hefur meðal annars hljóðritað Niflungahring Wagners og allar sinfóníur Bruckners (hvort tveggja í Hamborg). Hún er feikilega eftirsótt.
Frakkinn Nathalie Stutzmann (f. 1965) hóf feril sinn sem söngkona en hefur á undanförnum árum einbeitt sér að hljómsveitarstjórn. Hún nam meðal annars í Finnlandi hjá Jorma Panula en auk þess hjá Seiji Ozawa og Sir Simon Rattle. Stutzmann varð árið 2020 fyrsta konan til þess að gegna stöðu aðalgestastjórnanda við Fíladelfíu-hljómsveitina og haustið 2022 tók hún við stöðu tónlistarstjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar í Atlanta, fyrst kvenna.
Finninn Susanna Mälkki (f. 1969) nam upphaflega sellóleik og gegndi um tíma stöðu leiðandi sellóleikara í Sinfóníuhljómsveitinni í Gautaborg. Eftir 1998 hefur hún hins vegar einbeitt sér að hljómsveitarstjórn og er afar eftirsótt. Hún var til að mynda orðuð við stöðu tónlistarstjóra Fílharmóníusveitarinnar í New York (sem svo féll í skaut Gustavo Dudamel). Mälkki hefur mikið stjórnað samtímatónlist og tekist á við geysilega fjölbreytt verkefni. Hún hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Önnur kona sem hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Ísland er hins kanadíska Barbara Hannigan (f. 1971) en hún sló eftirminnilega í gegn á tvennum tónleikum í Hörpu vorið 2022. Hannigan er líka söngkona og hefur frumflutt tugi verka. Hún hefur stjórnað Berlínarfílharmóníunni og er gífurlega eftirsótt víða um heim. Hún er fyrsta konan til þess að gegna stöðu aðalgestastjórnanda í sögu Sinfóníuhljómsveitarinnar í Gautaborg.
Kínverski hljómsveitarstjórinn Xian Zhang (f. 1973) aðstoðaði Lorin Maazel snemma á ferlinum hjá Fílharmóníusveitinni í New York og varð aðstoðarstjórnandi við ljómsveitina 2005. Árið 2008 varð hún svo fyrsta konan til þess að stjórna Ríkishljómsveitinni í Dresden (Staatskapelle Dresden) í aðalsal hljómsveitarinnar og 2016 tók hún við BBC-hljómsveitinni í Wales og varð þannig fyrst kvenna til þess að stýra einni af hljómsveitum Breska útvarpsins. Zhang er með doktorspróf í hljómsveitarstjórn.
Oksana Lyniv (f. 1978) braut blað í sögu Wagner-hátíðarinnar í Bayreuth árið 2021 þegar hún stjórnaði þar, fyrst kvenna. Hún nam upphaflega söng, píanó- og flautuleik í heimalandi sínu, Úkraínu, en stundaði svo framhaldsnám í Þýskalandi. Lyniv tók, fyrst kvenna, við bæði óperuhúsunum í Graz (2017) og Bologna (2022).
Eun Sun Kim (f. 1980) sýndi snemma mikla tónlistarhæfileika og nam í heimalandi sínu, Suður-Kóreu, og síðar í Þýskalandi. Hún varð aðalgestastjórnandi við Houston-óperuna í Bandaríkjunum árið 2019, fyrst kvenna, og árið 2021 varð hún tónlistarstjóri San Francisco-óperunnar og þar með fyrsta konan til þess að taka við einu af stóru óperuhúsunum í Bandaríkjunum.
Kannski má segja að hin bandaríska Karina Canellakis (f. 1981)
hafi orðið fræg á einni nóttu þegar hún hljóp á síðustu stundu í skarðið fyrir Jaap van Zweden í Dallas og stjórnaði áttundu sinfóníu Shostakovitsj (án æfinga). Hún nam upphaflega fiðluleik en síðar hljómsveitarstjórn, þar á meðal hjá Alan Gilbert og Fabio Luisi. Canellakis varð árið 2019 fyrst kvenna til þess að taka við hljómsveit í Hollandi (Hollensku útvarpshljómsveitinni). Hún stjórnar víða og hefur meðal annars stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Mirga Gražinyté-Tyla (f. 1986) fæddist í Litáen og hóf að námi loknu feril sinn í Þýskalandi, fyrst í Heidelberg en síðar í Bern. Hún var um tíma aðstoðarhljómsveitarstjóri við Fílharmóníusveitina í Los Angeles en árið 2016 tók hún við Sinfóníuhljómsveitinni í Birmingham, fyrst kvenna; stöðu sem hún gegndi til 2022. Árið 2019 skrifaði hún undir langtímasamning við Deutsche Grammophon, aftur fyrst kvenna. Hún var lengi orðuð við stöðu Fílharmóníusveitarinnar í München (sem Lahav Shani hreppti að lokum).
Auðvitað mætti tína fleiri merkar konur í stöðu hljómsveitarstjóra til, svo sem Laurence Equilbey (f. 1962), Emmanuelle Haïm (f. 1962), Alondru de la Parra (f. 1980) og Joönu Mallwitz (f. 1986), en þessi umfjöllun verður að nægja í bili.
Magnús Lyngdal Magnússon
Greinin birtist í Morgunblaðinu í mars 2023