Beethoven.is
Plötudómur · 23. febrúar 2023

Ljúft og seiðandi

Tónskáld
David del Puerto
Flytjendur
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Francisco Javier Jáuregui, Elena Jáuregui, Beatriz Perona, Inma Veses Gil

Með þér – David del Puerto Vocal Works

★★★★

Verk eftir David del Puerto við eigin ljóð og ljóð eftir Kristján Þórð Hrafnsson, Paco Quirce og San Juan de la Cruz. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir (mezzósópran); Francisco Javier Jáuregui (gítar); Elena Jáuregui (fiðla); Beatriz Perona (selló) og Inma Veses Gil (óbó). ABU Records ABU003, árið 2022. Heildartími: 62:00 mín.

Spænska tónskáldið David del Puerto hefur samið alls 15 verk, bæði við eigin ljóð og svo ljóð eftir þá Kristján Þórð Hrafnsson, Paco Quirce og San Juan de la Cruz, fyrir mezzósópransöngkonuna Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og klassíska gítarleikarann Francisco Javier Jáuregui. Með þeim leika einnig á plötunni fiðluleikarinn Elena Jáuregui, sellóleikarinn Beatriz Perona (selló) og óbóleikarinn Inma Veses Gil.

David del Puerto er þekkt tónskáld á Spáni og meðal annars handhafi Þjóðarverðlauna Spánar í tónlist (Premio Nacional de la Música). Auk sunginna verka á plötunni er þar að finna tvær einleiksprélúdíur fyrir gítar (úr stærra verki: Sjö prélúdíur (Siete preludios) frá árinu 2014) sem mynda nokkurs konar millispil utan um viðamesta samstæða verk plötunnar, Söngva Quirce (Cantos de Quirce), sem eru hluti af umfangsmikilli 12 þátta kantötu fyrir mezzósópran, óbó, selló, gítar og söngkvartett (SATB). Hér eru þeir þættir fluttir sem skrifaðir eru fyrir mezzósópraninn og ýmsar samsetningar hljóðfæranna þriggja en söngkvartettinum er sleppt.

Platan er afrakstur hátt í áratugar samstarfs listamannanna og inniheldur hún stærstan hluta þeirrar sungnu kammertónlistar sem David del Puerto hefur samið á liðnum árum. Tónskáldið hefur greinilega næmt eyra fyrir samspili söngraddar og hljóðfæra; jafnvægið þar á milli er gott og raddlega séð eru verkin vel skrifuð, það er að segja mezzósópranrödd Guðrúnar Jóhönnu fær að njóta sín vel. Hljóðfæraútsetningar eða samsetning hljóðfæranna er að mestu leyti vel útfærð. Um er að ræða fyrstu upptökur sem gerðar hafa verið af umræddum verkum.

Flest eru verk plötunnar afar áheyrileg og sungin af Guðrúnu Jóhönnu með ljúfri en jafnt seiðandi röddu. Raunar má segja það sama um hljóðfæraleikinn sem bæði er vandaður og músíkalskur. Verkin eru hins vegar kannski ekki allra; sérstaklega Söngvar Quirce sem þó eru á sinn hátt heillandi í einfaldleika sínum. Hljóðið á plötunni er gott og frágangur allur vandaður.

Þetta er kannski ekki diskur sem ég myndi setja undir geislann við öll tækifæri en ég hafði samt gaman af að hlusta og við endurtekna hlustun fór mér smám saman að þykja vænt um sum verkanna, þar á meðal einleiksprelúdíurnar tvær, sem eru ákaflega vel leiknar af Francisco Javier Jáuregui.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2023

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu