Beethoven.is
Plötudómur · 23. febrúar 2023

Hugmyndaríkur og ljóðrænn

Tónskáld
Johann Sebastian Bach; Wolfgang Amadeus Mozart; Robert Schumann; Johannes Brahms; Béla Bartók; Sigvalda Kaldalóns; György Kurtág, Thomas Adès
Flytjendur
Víkingur Ólafsson

From Afar

★★★★★

Verk eftir m.a. Johann Sebastian Bach; Wolfgang Amadeus Mozart; Robert Schumann; Johannes Brahms; Béla Bartók; Sigvalda Kaldalóns; György Kurtág og Thomas Adès. Víkingur Ólafsson (píanó) og Halla Oddný Magnúsdóttir (gestaleikari á píanó). Deutsche Grammophon (DG) 486 1681, árið 2022 Heildartími: 95:43 mín. (tveir geisladiskar).

Píanistinn Víkingur Ólafsson segir skemmtilega frá því í fylgiriti með útgáfunni sem hér um ræðir hvernig það kom til – nokkuð óvænt – að hann hitti ungverska tónskáldið György Kurtág í Búdapest árið 2021. Þar áttu þeir um tveggja klukkustunda fund – sem upphaflega átti að vara í 10-15 mínútur – og lék Víkingur fyrir hinn aldna höfðingja brot út verkum tónskálda á borð við Bach, Haydn og Mozart auk íslenskra þjóðlaga. Samtal þeirra Víkings og Kurtágs varð þannig kveikjan að útgáfunni sem hér um ræðir; tvöföldum geisladiski sem nefnist From Afar og við gætum íslenskað Úr fjarska.

Hér er um að ræða 22 verk, eða þá brot úr verkum, eftirfarandi tónskálda: Johann Sebastian Bach, Wolfgang Amadeus Mozart, Robert Schumann, Johannes Brahms, Béla Bartók, Sigvaldi Kaldalóns, György Kurtág og Thomas Adès (auk íslensks þjóðlags). Verkin eru leikin á flygil á fyrri disknum en upprétt (og dempað) píanó á þeim seinni og eru því tvítekin, það er að segja á ólík hljóðfæri.

Prógrammið er sett saman af miklu hugviti sem stundum á sér jafnvel hljómfræðilega skírskotun; þannig endar Adagio-ið úr sónötu nr. 3 fyrir einleiksfiðlu eftir Bach (verk nr. 3 á diskunum) á forhljómnum G og næsta verk hefst í grunntóninum C, það er að segja Harmonica eftir Kurtág. Víkingur bendir líka á að verk Kurtágs séu nokkurs konar áttaviti á útgáfunni og val á öðrum verkum hafi þannig tekið mið af þeim.

Útsetningar á verkum Bachs á útgáfunni eru ýmist eftir Kurtág eða Víking sjálfan. Þá útsetti Víkingur Laudate Dominum eftir Mozart og Ave Maria eftir Sigvalda Kaldalóns og loks Snorri Sigfús Birgisson íslenskt þjóðlag. Halla Oddný Magnúsdóttir, eiginkona Víkings, leikur með honum í tveimur verkum, í kafla úr tríósónötu nr. 1 eftir Bach (verk nr. 11 á diskunum) og svo í kafla úr verki Kurtágs, Twittering (verk nr. 19 á diskunum).

Leikur Víkings er bæði hugmyndaríkur og ljóðrænn og afburða góð hljóðvinnsla (á báðum diskunum) spillir ekki fyrir. Hlustendum er kastað á milli afar ólíkra verka sem samt sem áður mynda í raun órofa heild. Verkin eru langflest í rólegri kantinum og fallegur og syngjandi tónn píanistans nýtur sín í hvívetna og þótt verkin séu mörg hver hæg dregur Víkingur aldrei seiminn úr hófi fram – hlustið til að mynda á Träumerei eftir Schumann sem er flutt í afar hægu en sannfærandi tempói.

From Afar er fimmti einleiksdiskur Víkings Ólafssonar fyrir Deutsche Grammophon (áður höfum við fengið að heyra til að mynda Bach, Mozart og Glass) og aðdáendur hans verða ekki fyrir vonbrigðum hér.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2023

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu