# Undir geislanum

> Þáttaröð Magnúsar Lyngdals Magnússonar á Rás 1, 6 þættir.

Heimild: https://beethoven.is/is/undir-geislanum

## Upprunaskólinn og rómantík

- 19. júlí 2026 · 40 mín.
- ruv.is: https://www.ruv.is/utvarp/spila/undir-geislanum/39663/bq85vh

Túlkun í klassískri tónlist tók að breytast mikið þegar hin svonefnda upprunastefna fékk byr undir báða vængi eftir miðja 20. öld. Hún snýst um þá aðferðafræði að flytja tónlist fyrri alda því sem næst í þeim búningi sem hún hljómaði á dögum viðkomandi tónskálds. Í þættinum verður fjallað um tilurð stefnunnar og áhrif hennar. Leikin verða tóndæmi úr verkum eftir Johann Sebastian Bach, Joseph Haydn, Ludwig van Beethoven og Gustav Mahler.

## Gustav Mahler

- 26. júlí 2026 · 39 mín.
- ruv.is: https://www.ruv.is/utvarp/spila/undir-geislanum/39663/bq85vi

Gustav Mahler fæddist árið 1860 og lést aðeins fimmtugur að aldri 1911. Það hefur reynst þrautin þyngri að skilgreina hann sem tónskáld en vissulega voru verk hans rómantísk að því leyti að þau tjá djúpar tilfinningar og vekja mikil áhrif. Hins vegar teygðu þau sum þeirra sig einnig sífellt nær módernisma 20. aldar. Í þættinum verður fjallað um afmarkaða þætti úr ævi Mahlers og leikin dæmi úr verkum hans.

## Zubin Mehta

- 2. ágúst 2026 · 40 mín.
- ruv.is: https://www.ruv.is/utvarp/spila/undir-geislanum/39663/bq85vj

Indverski hljómsveitarstjórinn Zubin Mehta hefur stjórnað fremstu hljómsveitum veraldar í áratugi, jafnt í tónleikasölum sem og í óperuhúsum. Hann fæddist í Bombay (nú Mumbai) og lærði í Vínarborg en gegndi lengst af föstum stöðum í Bandaríkjunum. Mehta er afar fjölhæfur stjórnandi og vinsæll af bæði hljóðfæraleikurum og söngvurum. Þá byggði meðal annars upp Fílharmóníusveitina í Los Angeles en stjórnar enn jafnt austan hafs sem vestan. Í þættinum verður fjallað feril Mehtas og leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Aaron Copland, Gustav Mahler, Dmítríj Shostakovítsj og Richard Strauss.

## Isaac Stern

- 9. ágúst 2026 · 40 mín.
- ruv.is: https://www.ruv.is/utvarp/spila/undir-geislanum/39663/bq85vk

Bandaríski fiðluleikarinn Isaac Stern og rússneski píanóleikarinn Alexander Zakin komu til Íslands árið 1955 á vegum Tónlistarfélagsins og héldu meðal annars sérstaka tónleika fyrir háskólakennara og stúdenta í hátíðarsal Háskóla Íslands. Þá lék Stern einleik með nýstofnaðri Sinfóníuhljómsveit Íslands í Þjóðleikhúsinu í fiðlukonsertinum eftir Felix Mendelssohn. Í þættinum ferðin rifjuð upp og vikið sérstaklega að blaðaumfjöllun í tengslum við hana. Leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Wolfgang Amadeus Mozart, Sergej Prokofjev, Niccolò Paganini og Felix Mendelssohn.

## Verismo í ítalskri óperu

- 16. ágúst 2026 · 39 mín.
- ruv.is: https://www.ruv.is/utvarp/spila/undir-geislanum/39663/bq85vl

Á seinni hluta 19. aldar varð til það sem kallað hefur verið verismo eða raunsæi í ítölskum óperuheimi. Fyrsta ítalska verismo-óperan er jafnan talin vera Cavalleria rusticana eftir Pietro Mascagni þó svo það hafi komið í hlut Giacomos Puccini að fullkomna stílinn sem stundum er einnig nefndur „sannleiksstíll“. Í þættinum verður fjallað um tilurð raunsæis í ítalskri óperu og leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Amilcare Ponchielli, Alfredo Catalani, Umberto Giordano og Francesco Cilea.

## Leontyne Price

- 23. ágúst 2026 · 40 mín.
- ruv.is: https://www.ruv.is/utvarp/spila/undir-geislanum/39663/bq85vm

Bandaríska sópransöngkonan Leontyne Price árið 1927 og hún lifir enn í hárri elli, 99 ára gömul. Hún þreytti frumraun sína á óperusviðinu í San Francisco árið 1957 en ferill hennar framan af fór mjög saman við réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum. Price hafði hljómmikla og en silkimjúka rödd með silfurtærri hæð og varð á örskömmum tíma ein eftirsóttasta sópransöngkona veraldar. Í þættinum verður fjallað um feril Price leikin dæmi frá löngum ferli hennar úr verkum eftir Giacomo Puccini og Giuseppe Verdi.
